Íslandsvinur Yoko Ono er meðal þeirra sem verk eiga á sýningunni.
Íslandsvinur Yoko Ono er meðal þeirra sem verk eiga á sýningunni. — Morgunblaðið/Golli
Sýningin Kviksjá – alþjóðleg safneign verður opnuð í dag í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi og gefst með henni sjaldgæft tækifæri til að fá innsýn í þann hluta safneignar Listasafns Reykjavíkur sem tileinkaður er alþjóðlegri myndlist, eins og segir í tilkynningu

Sýningin Kviksjá – alþjóðleg safneign verður opnuð í dag í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi og gefst með henni sjaldgæft tækifæri til að fá innsýn í þann hluta safneignar Listasafns Reykjavíkur sem tileinkaður er alþjóðlegri myndlist, eins og segir í tilkynningu. Á sýningunni má sjá verk frá ýmsum tímum og mörg hver eftir heimskunna myndlistarmenn.

„Fyrir utan verk eftir listamenn sem dvalið hafa langdvölum hér á landi eru á sýningunni verk eftir listamenn á borði við Carolee Schneemann og Jean Jacques Lebel sem eru tilkomin vegna tenginga við Erró og veglegar gjafir hans til safnsins, auk sérstakrar gjafar á verkum Flúxus-listamanna. Af nógu er að taka og óhætt að segja að hér kenni ýmissa grasa,“ segir í tilkynningu og að meðal þeirra listamanna sem eigi verk á sýningunni séu Dale Chiluly, Ian Hamilton Finley, Roni Horn, Yoko Ono, Patrick Huse, Bernd Koberling, Alicja Kwade, Kazumi Nakamura, Karin Sander, Lawrence Weiner og Barbara Westman.
Listasafn Reykjavíkur fagnar því á þessu ári að 50 ár eru liðin frá því að fyrsta aðsetur safnsins var formlega opnað á Kjarvalsstöðum. Í tilefni af þeim tímamótum verður sérstakur gaumur gefinn að safneigninni og tækfærið nýtt til að skoða og sýna gersemar úr safneigninni.

Sýningin Kviksjá – alþjóðleg safneign stendur yfir til 7. maí og 24. mars verður opnuð sýning á Kjarvalsstöðum með verkum úr innlendu safneigninni.