Tryggvi Garðar Jónsson, leikmaður Vals í handknattleik, meiddist á fingri í leik liðsins gegn Flensburg í Evrópudeildinni í síðustu viku og verður af þeim sökum frá æfingum og keppni í nokkrar vikur
Tryggvi Garðar Jónsson, leikmaður Vals í handknattleik, meiddist á fingri í leik liðsins gegn Flensburg í Evrópudeildinni í síðustu viku og verður af þeim sökum frá æfingum og keppni í nokkrar vikur. Handbolti.is greindi frá því í gær að sin hefði slitnað í baugfingri hægri handar Tryggva Garðars og að einnig hafi komið brot í fingurinn.
Af þeim sökum verði hann frá í að minnsta kosti þrjár vikur, en sá tími gæti orðið lengri.