Erlingur Guðleifsson
Erlingur Guðleifsson
Háskólinn í Fairbanks í Alaska hefur ráðið Erling Guðleifsson til starfa til að efla miðlun vísinda- og tækniþekkingar frá Íslandi til Alaska á sviði sjávarútvegs, orkumála og nýsköpunar. Fram kemur í tilkynningu frá Sjávarklasanum að Erlingur hafi…

Háskólinn í Fairbanks í Alaska hefur ráðið Erling Guðleifsson til starfa til að efla miðlun vísinda- og tækniþekkingar frá Íslandi til Alaska á sviði sjávarútvegs, orkumála og nýsköpunar. Fram kemur í tilkynningu frá Sjávarklasanum að Erlingur hafi verið hluti af ráðgjafateymi Sjávarklasans frá árinu 2018 og í sínu nýja starfi muni hann hafa aðsetur í Húsi sjávarklasans.

Háskólinn í Fairbanks er fyrsti bandaríski háskólinn sem formlega hefur störf innan veggja Íslenska sjávarklasans en háskólinn er framarlega á sviði norðurslóðarannsókna, sjávarlíffræði og þróunar orkuinnviða fyrir dreifbýlisvæði.

Í tilkynningu Sjávarklasans segir að hann hafi um árabil átt náið samstarf við Alaskaríki í Bandarikjunum en einn fyrsti dótturklasi Sjávarklasans sem settur var upp utan Íslands sé Alaska Ocean Cluster. Árið 2019 skrifuðu Sjávarklasinn og þáverandi stjórnandi Alaska Ocean Cluster, Justin Sternberg, undir viljayfirlýsingu um frekara samstarf milli þessara klasa.