Keflavík, Valur og Haukar, þrjú efstu lið Subway-deildar kvenna í körfubolta, fögnuðu öll sigrum er 20. umferðin var leikin í gærkvöldi. Keflavík vann 84:61-sigur á Grindavík á heimavelli. Valur og Haukar þurftu hins vegar að hafa meira fyrir sínum sigrum
Keflavík, Valur og Haukar, þrjú efstu lið Subway-deildar kvenna í körfubolta, fögnuðu öll sigrum er 20. umferðin var leikin í gærkvöldi. Keflavík vann 84:61-sigur á Grindavík á heimavelli. Valur og Haukar þurftu hins vegar að hafa meira fyrir sínum sigrum. Valur vann heimasigur á Fjölni, 109:104, í miklum spennuleik, en flestir áttu von á öruggum sigri Vals. Haukar unnu Njarðvík, 76:73, á heimavelli. Liðin mættust í úrslitum á síðustu leiktíð og þá vann Njarðvík. » 26