Gísli Snær Erlingsson
Gísli Snær Erlingsson
Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Gísla Snæ Erlingsson til að gegna embætti forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar ­Íslands til næstu fimm ára. Hann tekur við embætti­nu í apríl

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Gísla Snæ Erlingsson til að gegna embætti forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar ­Íslands til næstu fimm ára. Hann tekur við embætti­nu í apríl. Gísli Snær hefur starfað við leikstjórn um árabil og leikstýrði m.a. kvikmyndunum Ikíngut (2000) og Benjamín dúfu (1995). Hann var ráðinn skólastjóri Kvikmyndaskóla Lundúna árið 2016 og lét af störfum þar á síðasta ári.

Staða forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar var auglýst undir lok síðasta árs og sóttu 15 um stöðuna. „Var það mat þriggja manna hæfnisnefndar að Gísli Snær væri hæfastur til að gegna embættinu. Að loknum ráðningarviðtölum ráðherra var það heildstætt mat að Gísli Snær stæði öðrum umsækjendum framar,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.