Landsvirkjun seldi ríkissjóði 64,73% hlut sinn í Landsneti á síðasta ári en viðskiptin voru fjármögnuð með seljendaláni frá orkufyrirtækinu. Í svari frá því kemur fram að hluti lánsins sé í evrum og til fjögurra ára, svokallað kúlulán þar sem lánið verður allt greitt upp við lok lánstímans

Landsvirkjun seldi ríkissjóði 64,73% hlut sinn í Landsneti á síðasta ári en viðskiptin voru fjármögnuð með seljendaláni frá orkufyrirtækinu. Í svari frá því kemur fram að hluti lánsins sé í evrum og til fjögurra ára, svokallað kúlulán þar sem lánið verður allt greitt upp við lok lánstímans. Hinn hluti fjármögnunarinnar er til fimm ára með jöfnum afborgunum og er í evrum.

Í viðræðum lífeyrissjóða við fulltrúa fjármála- og efnahagsráðuneytisins um mögulegt uppgjör á skuldbindingum ÍL-sjóðs hafa hugmyndir verið viðraðar um að ríkissjóður afhendi sjóðunum hlutabréf í Landsneti í skiptum fyrir kröfur á hendur sjóðnum. Kaup ríkisins á raforkuflutningsfyrirtækinu á liðnu ári myndu gera þau viðskipti möguleg.
» ViðskiptaMogginn