Þýskaland Gísli Þorgeir Kristjánsson varð meistari með Magdeburg.
Þýskaland Gísli Þorgeir Kristjánsson varð meistari með Magdeburg. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gísli Þorgeir Kristjánsson var kjörinn vinsælasti leikmaðurinn í þýska handboltanum af stuðningsfólki liðanna en hann fékk viðurkenninguna á verðlaunahátíð fyrir árið 2022 hjá handboltamiðlinum Handball World

Gísli Þorgeir Kristjánsson var kjörinn vinsælasti leikmaðurinn í þýska handboltanum af stuðningsfólki liðanna en hann fékk viðurkenninguna á verðlaunahátíð fyrir árið 2022 hjá handboltamiðlinum Handball World. Juri Knorr, landsliðsmaðurinn ungi hjá Rhein-Neckar Löwen, var valinn besti leikmaðurinn. Bennet Wiegert hjá Magdeburg, liði Gísla og Ómars Inga Magnússonar, var kjörinn þjálfari ársins og Magdeburg er lið ársins.