Leeds United Javi Gracia er kominn aftur í ensku úrvalsdeildina.
Leeds United Javi Gracia er kominn aftur í ensku úrvalsdeildina. — AFP
Spánverjinn Javi Gracia hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska félagsins Leeds. Hann tekur við af Jesse Marsch sem var sagt upp störfum snemma í þessum mánuði. Gracia er 52 ára og hefur stýrt liðum í Katar, á Spáni og í Rússlandi á undanförnum…

Spánverjinn Javi Gracia hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska félagsins Leeds. Hann tekur við af Jesse Marsch sem var sagt upp störfum snemma í þessum mánuði. Gracia er 52 ára og hefur stýrt liðum í Katar, á Spáni og í Rússlandi á undanförnum árum, og þá var hann knattspyrnustjóri Watford í ensku úrvalsdeildinni í 20 mánuði frá janúar 2018 til september 2019 þar sem hann fór með liðið í bikarúrslit og náði 11. sæti deildarinnar.