<em>Skoruðu </em>Karim Benzema, Vinícius Júnior og Éder Militao fagna.
Skoruðu Karim Benzema, Vinícius Júnior og Éder Militao fagna. — AFP/Paul Ellis
Evrópumeistarar Real Madrid unnu ótrúlegan útisigur á Liverpool, 5:2, þegar liðin mættust í Meistaradeildinni í fótbolta á Anfield í gærkvöld en þetta var fyrri leikur þeirra í 16-liða úrslitunum. Darwin Nunez og Mohamed Salah komu Liverpool í 2:0 á fyrstu 14 mínútum leiksins

Evrópumeistarar Real Madrid unnu ótrúlegan útisigur á Liverpool, 5:2, þegar liðin mættust í Meistaradeildinni í fótbolta á Anfield í gærkvöld en þetta var fyrri leikur þeirra í 16-liða úrslitunum. Darwin Nunez og Mohamed Salah komu Liverpool í 2:0 á fyrstu 14 mínútum leiksins. Vinícius Júnior jafnaði, 2:2, með tveimur mörkum fyrir hlé, Éder Militao skoraði þriðja mark Real og Karim Benzema innsiglaði sigurinn með tveimur mörkum.