Kristján Snorrason við íbúðir sem hann er að reisa á Nónhæð.
Kristján Snorrason við íbúðir sem hann er að reisa á Nónhæð. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kristján Snorrason húsasmíðameistari missti föður sinn 11 ára og var snemma sagt að hann þyrfti að standa sig í lífinu. Nítján ára seldi Kristján fyrsta húsið sem hann byggði og síðan er liðin nær hálf öld og hann er enn að byggja

Kristján Snorrason húsasmíðameistari missti föður sinn 11 ára og var snemma sagt að hann þyrfti að standa sig í lífinu. Nítján ára seldi Kristján fyrsta húsið sem hann byggði og síðan er liðin nær hálf öld og hann er enn að byggja.

Kristján hefur því upplifað tímana tvenna á íslenskum fasteignamarkaði. Hann segir greininni hafa farið aftur eftir efnahagshrunið. Reyndir verktakar hafi horfið af markaði og óreyndari menn komið í staðinn.

Á þátt í gölluðum húsum

Þessi óheillaþróun eigi sinn þátt í ágöllum á húsnæði hin síðari ár.

Þá sé byggingarreglugerðin orðin of flókin og íþyngjandi og tímabært að endurskoða hana.

Kristján er nú að byggja og selja íbúðir á Nónhæð, á mörkum Kópavogs og Garðabæjar, en þær dýrustu kosta vel á annað hundrað milljónir króna.

Kristján segir greinilegt að fjárhagsstaða margra kaupenda sé góð og að kaupmátturinn sé ágætur

„Ég skynja að það er góður kaupmáttur. Sé ekki annað en að stór hluti fólks á mínum aldri, og jafnvel eldra, eigi orðið verulegar eignir,“ segir Kristján. Það leyni sér ekki að „margir séu að erfa háar fjárhæðir“.

Á hinn bóginn sé orðið erfiðara fyrir fyrstu kaupendur að koma hinn á markaðinn. Þá m.a. vegna hertra útlánareglna og vaxtahækkana.