Danmörk Hákon Arnar hefur vakið mikla athygli með Köbenhavn.
Danmörk Hákon Arnar hefur vakið mikla athygli með Köbenhavn. — AFP/Bo Amstrup
Hinn 19 ára gamli Hákon Arnar Haraldsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu með FC Köbenhavn. Samkvæmt danska fjölmiðlinum BT er aðeins einn leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar verðmætari

Hinn 19 ára gamli Hákon Arnar Haraldsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu með FC Köbenhavn. Samkvæmt danska fjölmiðlinum BT er aðeins einn leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar verðmætari. BT segir Hákon metinn á 135 milljónir danskra króna, eða 2,8 milljarða íslenskra króna. Ernes Nuamah, 19 ára leikmaður Nordsjælland, er einn fyrir ofan Hákon og metinn á 151 milljón danskra króna.