Karlmaður hefur verið dæmdur í 10 mánaða fangelsi, þar af eru sjö mánuðir skilorðsbundnir, fyrir vörslu og dreifingu á miklu magni af grófu barnaníðsefni. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra

Karlmaður hefur verið dæmdur í 10 mánaða fangelsi, þar af eru sjö mánuðir skilorðsbundnir, fyrir vörslu og dreifingu á miklu magni af grófu barnaníðsefni. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Efnið fannst á síma mannsins eftir að hann var handtekinn fyrir umferðarlagabrot, en síðar var leitað á dvalarstað hans þar sem einnig fannst mikið magn af grófu barnaníðsefni á síma og iPad. Málið kom upp um mitt ár 2019.

Samtals fundust í fórum mannsins í rafmagnstækjunum þremur og á Telegram-reikningi hans yfir 21 þúsund ljósmyndir, teiknimyndir eða hreyfiteiknimyndir sem sýndu barnaníðsefni auk 111 myndskeiða. Mest var magnið á Telegram-reikningi mannsins, en þar fundust tæplega 21 þúsund teiknimyndir og hreyfiteiknimyndir auk um hundrað ljósmynda. Nokkur hundruð ljósmyndir og myndskeið fundust hins vegar á tækjunum sjálfum. Um var að ræða myndefni sem sýndi allt frá ungbörnum upp í börn á unglingsaldri í kynferðislegum athöfnum. Maðurinn játaði sök í málinu. Þótti hæfileg refsing 10 mánuðir en sjö af þeim eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Tekið er fram í dómnum að rannsókn málsins hafi dregist úr hófi en vegna alvarleika brotsins var ekki talið við hæfi að skilorðsbinda refsinguna nema að hluta.