Max Cavalera er bræðrahollur.
Max Cavalera er bræðrahollur. — AFP/Frazer Harrison
Max Cavalera, forsprakki þrassbandsins Soulfly, styður umtalaða endurkomu grúvkónganna í Pantera en telur samt ekki rétt að nýja bandið kalli sig því nafni en tveir af upprunalegum meðlimum þess, bræðurnir Vinnie Paul og Dimebag Darrell, eru látnir…

Max Cavalera, forsprakki þrassbandsins Soulfly, styður umtalaða endurkomu grúvkónganna í Pantera en telur samt ekki rétt að nýja bandið kalli sig því nafni en tveir af upprunalegum meðlimum þess, bræðurnir Vinnie Paul og Dimebag Darrell, eru látnir „Það eru tvær hliðar á málinu,“ segir hann í samtali við hlaðvarpið Rock Interview Series. „Þetta er snúið. Annars vegar skil ég að aðdáendurnir vilji sjá bandið enda er ennþá nokkuð stór hluti þess innanborðs en hins vegar vantar tvo lykilmenn og í mínum huga kemur enginn í stað bræðranna. Þannig að þetta er erfitt. Mjög erfitt.“