Ole Anton Bieltvedt
Því miður verður ekki annað séð en að við Íslendingar og Evrópubúar, reyndar jarðarbúar allir, séum að sigla inn í heim mikilla breytinga og ört vaxandi óvissu og óöryggis. Friðarhorfur næstu ár og áratugi eru ekki góðar.
Blikur á lofti í Evrópu
Friðurinn er það dýrmætasta sem við, þjóðir jarðar, eigum. Með honum má byggja, breyta og bæta, taka á vandamálum og þróa lausnir - án hans spillist flest gott og uppbyggilegt; verður illmögulegt.
Frá 1945 hafa einkum ESB, evran og NATO tryggt frið í Evrópu, segja verður í Vestur-Evrópu, eftir innrás Pútíns í Úkraínu. Menn kunna að undrast að ég vilji líka þakka evru friðinn, en hún er staðfesting og innsigli 20 ESB-þjóða og sex annarra, 26 evruríkja, á samstöðu, samvinnu, bræðralagi og friði sín á milli. Evran er mikilvægt sameiningartákn.
Pútín ógnar ekki bara friði í Austur-Evrópu heldur í Evrópu allri, trúlega líka í Mið-Asíu, en markmið hans virðist vera að endurreisa Sovétríkin, ríkjasamband 290 milljóna manna sem liðaðist í sundur og féll 1991, en íbúar Rússlands eru 145 milljónir.
Ef Pútín verður ekki haminn, honum haldið niðri í Úkraínu og/eða ef til þess kemur að hann beiti kjarnorkuvopnum í Úkraínu, er gífurleg hætta á útbreiðslu ófriðar - víðtæku stríði - í Evrópu.
Kúnst Vesturveldanna er að styðja Úkraínu svo dyggilega og vel að þeir geti endanlega stöðvað framrás Rússa og helst hrakið þá af höndum sér sem mest til baka að alþjóðlega virtum og lögmætum landamærum, án þess að Pútín grípi til kjarnorkuvopna.
Eflaust verða Úkraínumenn að gefa minnst Krímskaga eftir, kannski líka þann hluta Austur-Úkraínu þar sem íbúar eru af rússnesku bergi brotnir og tala rússnesku. Úkraínumenn geta ekki unnið þetta stríð, og án þess að Pútín geti haldið andlitinu gagnvart rússnesku þjóðinni og umheiminum verður því ekki lokið með þeim hætti að framtíðaröryggi Evrópu verði sæmilega tryggt.
Ekki minni blikur í Asíu
Kínverjar voru lengst af friðsamleg þjóð sem hafði sig hernaðarlega lítt í frammi. Á síðustu öld og áratugum hefur þetta breyst. Sérstaklega með Xi 1950/1951 innlimuðu þeir Tíbet og nú má ekki mikið út af bregða til að þeir ráðist á Taívan, en Biden hefur lýst því yfir að Bandaríkjamenn muni verja Taívan.
Nýlega festu Bandaríkjamenn viðveru sína við Suður-Kínahaf í sessi og tryggðu aukinn hernaðarmátt sinn á Filippseyjum með fjórum nýjum herstöðvum. Fyrir eru Bandaríkjamenn með sterka hernaðarlega viðveru við Austur-Kínahaf, í Suður-Kóreu og Japan. Þar á milli er Taívansund og Taívan.
Það virðist mikil hætta á að Xi rjúfi hér friðinn, vilji taka Taívan, sem þeir telja að tilheyri Kína svipað og Rússar töldu Krímskaga hluta Rússlands, og að slík aðgerð ógni þá Filippseyjum, Suður-Kóreu og Japan, ekki bara bandalagsþjóðum Bandaríkjanna heldur í raun verndarsvæði Bandaríkjanna.
Til hliðar við þessa púðurtunnu stendur svo Norður-Kórea með sínar kjarnorkusprengjur og eldflaugar sem verða sífellt langdrægari og ógna nú ekki aðeins öðrum Asíuríkjum heldur líka Norður-Ameríku.
Því miður eru gífurlegar líkur á að upp úr sjóði á þessu svæði innan áratugar eða tveggja, jafnvel miklu fyrr. Gæti meira að segja gerst í ár eða það næsta.
Í öllu falli verða Bandaríkin í vaxandi mæli bundin af Asíuógninni, sem um leið þýðir að þau hafa síminnkandi efnahagslegt og hernaðarlegt bolmagn til að verja og tryggja frið og öryggi í Evrópu. Enda heyrast þar raddir í vaxandi mæli, einkum innan raða repúblikana, sem krefjast þess að Evrópa verji sig sjálf.
Það stafar stórfelld ógn af þríeykinu Pútín-Xi-Kim! Því eina sem getur hamið þá verður best lýst með 1. friðarreglu rómverska keisarans Hadríans (76-138 e.K.): „Friður með (hernaðar)styrk!“
ESB og Þýskaland eru von okkar
Órjúfandi samstaða og sjálfstæður og fullnægjandi efnahagslegur og hernaðarlegur máttur Evrópu hefur því gífurlegt gildi fyrir framtíðaröryggi og velferð Evrópu! Til lengri tíma getum við Evrópubúar, Íslendingar auðvitað meðtaldir, ekki á aðra treyst en okkur sjálf en því miður er hættan á nýjum eða vaxandi ófriði út frá Pútín feikimikil. Ég óttast sterklega að friður verði aftur rofinn í Evrópu á næstu árum, kannski áratugum, ef hann heldur völdum.
Meginvonin og huggunin er í raun sú að Þýskaland, tæknivæddasta og efnahagslega öflugasta ríki ESB, er loks að endurhervæða sig með gífurlegri fjárfestingu í vörnum sínum og hernaðarmætti, sem verða um leið grunnvarnir Evrópu, en nokkrum dögum eftir árás Pútíns á Úkraínu ákvað þýska ríkisstjórnin að setja aukafjárframlag upp á 100 milljarða evra, 15.000 milljarða króna, stjarnfræðilega fjárhæð, í enduruppbyggingu og styrkingu síns hernaðarmáttar, sem hefur setið á hakanum eftir stríð.
Öll önnur Evrópuríki, einkum Norðmenn, Danir, Svíar og Finnar, líka Eystrasaltslöndin, Pólland, Tékkland og Slóvakía, eru á svipaðan hátt að auka sín framlög til varnarmála.
Evrópa þarf sennilega fimm ár til að tryggja framtíðarvarnir/öryggi sitt. Vonandi fær hún þau.
Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni.