Tvíeykið Amarosis, með systkinunum Má Gunnarssyni og Ísold Wilberg, hefur gefið út fyrsta lagið sitt eftir að þau stálu hjörtum landsmanna í Söngvakeppninni á síðasta ári. Lagið ber titilinn Thunder
Tvíeykið Amarosis, með systkinunum Má Gunnarssyni og Ísold Wilberg, hefur gefið út fyrsta lagið sitt eftir að þau stálu hjörtum landsmanna í Söngvakeppninni á síðasta ári. Lagið ber titilinn Thunder.
Már kynnti lagið hjá Heiðari Austmann á K100. „Pælið í því, það er komið ár síðan,“ sagði Már í kynningunni. „Nýja lagið okkar heitir Thunder eða eins og ég vil kalla það þrumupopplagið,“ sagði Már sem skilar innilegum kveðjum frá Englandi þar sem hann stundar nú nám.