Heiður er sómi, frægð, tign. Að halda e-ð í heiðri þýðir að virða það. Maður getur haldið þann sið í heiðri að flagga á hátíðisdögum

Heiður er sómi, frægð, tign. Að halda e-ð í heiðri þýðir að virða það. Maður getur haldið þann sið í heiðri að flagga á hátíðisdögum. Svo er hægt að halda samning í heiðri í stað þess að svíkja hann. Og gott upp á líf og limi að halda stöðvunarskyldu í heiðri. Allt í þolfalli, ekki reyna að „halda neinu í heiðri“.