Ofbeldi Smith sló Rock utan undir á Óskarsverðlaunahátíðinni í fyrra.
Ofbeldi Smith sló Rock utan undir á Óskarsverðlaunahátíðinni í fyrra. — AFP/Robyn Beck
Uppistandarinn og leikarinn Chris Rock hefur loksins tjáð sig um löðrunginn sem Will Smith veitti honum á Óskarsverðlaununum í fyrra, um ári síðar. Það gerði hann í beinni útsendingu á Netflix á nýjasta uppistandi sínu fyrir fáeinum dögum

Uppistandarinn og leikarinn Chris Rock hefur loksins tjáð sig um löðrunginn sem Will Smith veitti honum á Óskarsverðlaununum í fyrra, um ári síðar. Það gerði hann í beinni útsendingu á Netflix á nýjasta uppistandi sínu fyrir fáeinum dögum. Sagðist hann orðinn leiður á því að tala um löðrunginn en vildi þó að eitt væri á hreinu: löðrungurinn hefði valdið honum sársauka og gerði enn. „Þeir sem segja að orð valdi sársauka hafa ekki verið kýldir í andlitið,“ sagði Rock bæði í gríni og alvöru. Rock hélt andlitinu sem kynnir á Óskarnum eftir atvikið og hlaut hrós fyrir en skömmu eftir löðrunginn tók Smith við verðlaunum sem besti leikari í aðalhlutverki.