Norður
♠ ÁK1062
♥ KD102
♦ 72
♣ 108
Vestur
♠ 5
♥ 8
♦ Á95
♣ DG976532
Austur
♠ DG8743
♥ Á63
♦ D84
♣ 4
Suður
♠ 9
♥ G9754
♦ KG1063
♣ ÁK
Suður spilar 4♥.
„Á dauða mínum átti ég von en ekki því að austur myndi trompa.“ Stefán Stefánsson varð sagnhafi í 4♥ eftir tíðindalitlar sagnir: Gunnar Björn Helgason í norður vakti á 1♠, Stefán krafði í geim með 2♥ og Gunnar hækkaði í 4♥. Hvorki hósti né stuna frá Þorgerði Jónsdóttur í vestur, sem taldi ástæðulaust að tefla lauflitnum fram í svo þröngri stöðu, á hættu gegn utan. Útspilið var laufdrottning og Stefán ákvað að taka báða slagina á lauf strax áður en hann spilaði hjarta. En brá illa í brún þegar austur trompaði óvænt síðara laufið!
Stefán hitti í tígulinn síðar meir og vann 4♥ slétt og hefði svo sem aldrei getað gert betur. Ef hann trompar út í öðrum slag, spilar austur tígli yfir á ás makkers og fær stungu í laufi eftir sem áður. Og hinn möguleikinn – að henda hálaufi í háspaða – skilar engu heldur, því þá trompar vestur!