Fimm bíla árekstur varð í gær rétt um fimmleytið á Miklubraut á akreininni í vesturátt rétt hjá Skeifunni. Voru þrír fluttir á sjúkrahús í kjölfar árekstursins, en ekki lá fyrir í gær hvort um alvarlega áverka hefði verið að ræða
Fimm bíla árekstur varð í gær rétt um fimmleytið á Miklubraut á akreininni í vesturátt rétt hjá Skeifunni. Voru þrír fluttir á sjúkrahús í kjölfar árekstursins, en ekki lá fyrir í gær hvort um alvarlega áverka hefði verið að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðsins voru fjórir sjúkrabílar sendir á vettvang og einn dælubíll.
Miklar tafir urðu á síðdegisumferðinni í kjölfar árekstursins, og teygði bílaröðin sig langa vegu, á meðan unnið var að því að fjarlægja bílana.