Unnur Ómarsdóttir, hornamaður KA/Þórs og landsliðskona í handbolta, er barnshafandi og verður ekki meira með Akureyrarliðinu á tímabilinu. Akureyri.net greindi frá þessu í gær en Unnur og eiginmaður hennar, Einar Rafn Eiðsson, leikmaður karlaliðs KA í handbolta, eiga von á barninu í september
Unnur Ómarsdóttir, hornamaður KA/Þórs og landsliðskona í handbolta, er barnshafandi og verður ekki meira með Akureyrarliðinu á tímabilinu. Akureyri.net greindi frá þessu í gær en Unnur og eiginmaður hennar, Einar Rafn Eiðsson, leikmaður karlaliðs KA í handbolta, eiga von á barninu í september.
Unnur hefur ekki verið með KA/Þór í undanförnum leikjum en liðið er í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar.