Berjaya Hotels Iceland hét áður Icelandair Hotels en var selt 2021.
Berjaya Hotels Iceland hét áður Icelandair Hotels en var selt 2021. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tap samstæðu Berjaya Hotels Iceland nam á síðasta reikningsári um 583 milljónum króna, samanborið við tap upp á 1,8 milljarða fyrir árið þar á undan. Berjaya Hotels, áður Icelandair Hotels, breytti í fyrra fjárhagsári sínu þannig að það gildir frá júlí til júní

Tap samstæðu Berjaya Hotels Iceland nam á síðasta reikningsári um 583 milljónum króna, samanborið við tap upp á 1,8 milljarða fyrir árið þar á undan. Berjaya Hotels, áður Icelandair Hotels, breytti í fyrra fjárhagsári sínu þannig að það gildir frá júlí til júní. Tekjur félagsins á tímabilinu námu um 10 millljörðum króna en voru aðeins um 1,5 milljarðar árið á undan (þegar heimsfaraldur geisaði). Tap félagsins hefur numið um 7,6 milljörðum króna frá 2019. Þrátt fyrir tveggja milljarða króna hlutafjáraukningu í fyrra var eigið fé neikvætt í lok tímabilsins um 734 milljónir króna.