Staða karlalandsliðs Íslands í körfuknattleik er óbreytt á nýjasta heimslista FIBA sem gefinn hefur verið út að lokinni undankeppninni fyrir heimsmeistaramótið. Íslenska liðið er áfram í 49. sæti yfir landslið heimsins og áfram í 26
Staða karlalandsliðs Íslands í körfuknattleik er óbreytt á nýjasta heimslista FIBA sem gefinn hefur verið út að lokinni undankeppninni fyrir heimsmeistaramótið. Íslenska liðið er áfram í 49. sæti yfir landslið heimsins og áfram í 26. sæti innan Evrópu. Næstu lið fyrir ofan Ísland eru Úrúgvæ, Búlgaría og Bretland, en í sætunum fyrir neðan eru Svíþjóð, Panama og Kólumbía. Alls er 161 þjóð á listanum, þar af 47 úr Evrópu.