— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nokkur áhugi var á framboðsfundi VR sem haldinn var á Grand hóteli í gær, en þar fengu Ragnar Þór Ingólfsson, núverandi formaður félagsins (lengst t.h.) og Elva Hrönn Hjartardóttir, mótframbjóðandi hans (fremst fyrir miðri mynd), tækifæri til þess…

Nokkur áhugi var á framboðsfundi VR sem haldinn var á Grand hóteli í gær, en þar fengu Ragnar Þór Ingólfsson, núverandi formaður félagsins (lengst t.h.) og Elva Hrönn Hjartardóttir, mótframbjóðandi hans (fremst fyrir miðri mynd), tækifæri til þess að kynna sig og stefnumál sín fyrir félagsmönnum í stéttarfélaginu.

Gátu félagar fylgst með fundinum í beinu streymi en kosningar til formanns og stjórnar VR hefjast í dag kl. 9. Lýkur þeim á hádegi hinn 15. mars, eða eftir viku.