París Mikill troðningur varð fyrir utan leikvanginn Stade de France.
París Mikill troðningur varð fyrir utan leikvanginn Stade de France. — AFP/Thomas Coex
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, tilkynnti í gær að allt stuðningsfólk Liverpool sem mætti á úrslitaleik Meistaradeildar karla síðasta vor fengi endurgreitt. Óreiða og troðningur fyrir utan Stade de France fyrir leik urðu til þess að honum var seinkað um tæpan klukkutíma

Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, tilkynnti í gær að allt stuðningsfólk Liverpool sem mætti á úrslitaleik Meistaradeildar karla síðasta vor fengi endurgreitt. Óreiða og troðningur fyrir utan Stade de France fyrir leik urðu til þess að honum var seinkað um tæpan klukkutíma. Úttekt leiddi í ljós að UEFA bar mesta ábyrgð á því og því mun sambandið endurgreiða samtals um þrjár milljónir punda, tæpar 507 milljónir íslenskra króna.