Sviss Ólafur Guðmundsson leikur í vetur með Amicitia Zürich.
Sviss Ólafur Guðmundsson leikur í vetur með Amicitia Zürich. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ólafur Guðmundsson, landsliðsmaður í handknattleik, er á leið til Svíþjóðar á ný eftir þetta tímabil, samkvæmt heimildum Aftonbladet í Svíþjóð. Ólafur lék þar í átta ár með Kristianstad en fer nú til Karlskrona, sem er í baráttu um sæti í sænsku úrvalsdeildinni

Ólafur Guðmundsson, landsliðsmaður í handknattleik, er á leið til Svíþjóðar á ný eftir þetta tímabil, samkvæmt heimildum Aftonbladet í Svíþjóð. Ólafur lék þar í átta ár með Kristianstad en fer nú til Karlskrona, sem er í baráttu um sæti í sænsku úrvalsdeildinni. Ólafur leikur með Amicitia Zürich í Sviss og á þar eftir tvö ár af samningi sínum en samkvæmt Aftonbladet vill fjölskyldan flytja aftur til Svíþjóðar í sumar.