Allsnægtir Nóg að bíta og brenna.
Allsnægtir Nóg að bíta og brenna.
Það er ekki á okkur logið Íslendinga að við erum lukkunnar pamfílar. Við erum eins og mýs í korngeymslu að úða í sig góðgætinu. Við eigum nóg af öllu eins og íbúðarhæf hús sem við rífum til að þétta byggð og byggja hátt

Sunnlendingur

Það er ekki á okkur logið Íslendinga að við erum lukkunnar pamfílar. Við erum eins og mýs í korngeymslu að úða í sig góðgætinu. Við eigum nóg af öllu eins og íbúðarhæf hús sem við rífum til að þétta byggð og byggja hátt. Við eigum líka nóg land til að reisa eins marga vindmyllugarða og okkur lystir til að ferðamenn undrist slík mannvirki, hvað þau fari vel við víðernin.

Þótt einhverjir þusi um skort á húsnæði þá tökum við glaðbeitt við öllum sem koma vilja, eins og í gamalli nýársþulu, enda vel auglýst fyrir góðvild.

Við höfum líka atvinnu fyrir tugþúsundir útlendinga sem hafa það betra hér en heima hjá sér við að byggja hús, keyra bíla og vinna á hótelum sem við eigum guði sé lof nóg af þótt útlendir séu farnir að bera í þau víurnar.

Við eigum nóga peninga til að borga 900 kr. fyrir pund af brauði og nóg af ferðamönnum, sem eru svo margir að þeir fá nóg hver af öðrum og hlaupa á fjöll. Satt að segja eru líka margir búnir að fá nóg af pólitíkinni. Meira um það næst.

Sunnlendingur

Höf.: Sunnlendingur