Það er ýmislegt á döfinni hjá tvítugu söng- og leikkonunni Kötlu Þórudóttur Njálsdóttur en hún var tilnefnd til Edduverðlauna á dögunum, eitthvað sem hún á enn erfitt með að trúa, og undirbýr sig nú fyrir að fylgja framlagi Íslands í Eurovision alla …

Það er ýmislegt á döfinni hjá tvítugu söng- og leikkonunni Kötlu Þórudóttur Njálsdóttur en hún var tilnefnd til Edduverðlauna á dögunum, eitthvað sem hún á enn erfitt með að trúa, og undirbýr sig nú fyrir að fylgja framlagi Íslands í Eurovision alla leið til Liverpool, en hún er bakrödd í lagi Diljár, „Power“. Sjálf tók hún þátt í Söngvakeppninni í fyrra en hún segir stresslausa bakraddalífið vera góða tilbreytingu. Katla ræddi um þetta í Ísland vaknar en það má sjá og heyra á K100.is.