Marcus Rashford
Marcus Rashford
Marcus Rashford var í gær útnefndur besti leikmaður febrúarmánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði fimm mörk í fjórum leikjum Man­chester United í deildinni í febrúar og var valinn bestur í mánuði í þriðja sinn á tímabilinu

Marcus Rashford var í gær útnefndur besti leikmaður febrúarmánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði fimm mörk í fjórum leikjum Man­chester United í deildinni í febrúar og var valinn bestur í mánuði í þriðja sinn á tímabilinu. United vann þrefalt því Erik ten Hag var útnefndur besti knattspyrnustjóri mánaðarins, eftir að liðið fékk 10 stig af 12 mögulegum í febrúar, og David de Gea átti bestu markvörslu mánaðarins.