Jóhann Frímann Stefánsson fæddist 9. maí 1952. Jóhann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 23. janúar 2023.

Útförin fór fram í kyrrþey 1. febrúar 2023.

Ég sendi þér kæra kveðju,

nú komin er lífsins nótt,

þig umvefji blessun og bænir,

ég bið að þú sofir rótt.

Þó svíði sorg mitt hjarta

þá sælt er að vita af því,

þú laus ert úr veikinda viðjum,

þín veröld er björt á ný.

Ég þakka þau ár sem ég átti,

þá auðnu að hafa þig hér,

og það er svo margs að minnast,

svo margt sem um hug minn fer,

þó þú sért horfinn úr heimi,

ég hitti þig ekki um hríð,

þín minning er ljós sem lifir

og lýsir um ókomna tíð.

(Þórunn Sigurðardóttir)

Takk fyrir synina okkar tvo, Baldur Hólm og Stefán Frey. Allt traust, stuðning og kærleika.

Sjáumst síðar í sumarlandinu.

Anna Guðrún Bjarkadóttir.