Áfangi Matt Heafy, forsprakki bandaríska málmbandsins Trivium, hlaut á dögunum svarta beltið í brasilísku jiu-jitsu. Hann greindi sjálfur frá þessu á samfélagsmiðlum en að baki liggja ófáir lítrar af blóði, svita og tárum en Heafy, sem er 37 ára, hóf að stunda íþróttina fyrir réttum áratug
Áfangi Matt Heafy, forsprakki bandaríska málmbandsins Trivium, hlaut á dögunum svarta beltið í brasilísku jiu-jitsu. Hann greindi sjálfur frá þessu á samfélagsmiðlum en að baki liggja ófáir lítrar af blóði, svita og tárum en Heafy, sem er 37 ára, hóf að stunda íþróttina fyrir réttum áratug. „Takk, allir sem ég hef æft með, lært af, tapað fyrir og fjölskylda og vinir [...] en aðallega þó prófessorinn minn, Gutty.“