Svalur Haldiði að svalasti maður sjónvarpssögunnar, breski rannsóknarlögreglumaðurinn John Luther, sé ekki snúinn aftur í kvikmynd á efnisveitunni Netflix. Luther: The Fallen Sun kallast ræman og Luther, sem fallið hefur af stalli sínum, er…
Svalur Haldiði að svalasti maður sjónvarpssögunnar, breski rannsóknarlögreglumaðurinn John Luther, sé ekki snúinn aftur í kvikmynd á efnisveitunni Netflix. Luther: The Fallen Sun kallast ræman og Luther, sem fallið hefur af stalli sínum, er nýstrokinn úr fangelsi til að klófesta enn eitt ómennið – sjálfur með stétt sína á hælunum. Búast má við góðum sprettum en Neil Cross, höfundur seríunnar, kveðst í samtali við Radio Times ekki í annan tíma hafa haft úr meira fé að moða. „Striginn hefur aldrei verið stærri.“