— Morgunblaðið/Hari
Umferð í nýliðnum febrúar jókst um 12% á höfuðborgarsvæðinu miðað við sama mánuð á síðasta ári. Þessi aukning varð til þess að gamla umferðarmetið frá árinu 2019 var slegið um 0,1%, segir á vef Vegagerðarinnar

Umferð í nýliðnum febrúar jókst um 12% á höfuðborgarsvæðinu miðað við sama mánuð á síðasta ári. Þessi aukning varð til þess að gamla umferðarmetið frá árinu 2019 var slegið um 0,1%, segir á vef Vegagerðarinnar.

Umferð hefur aukist um 12% á höfuðborgarsvæðinu frá áramótum. Aldrei áður hefur mælst meiri aukning í umferð fyrir fyrstu tvo mánuði ársins, á milli ára. Í nýliðnum febrúar jókst umferð langmest á mánudögum eða um rúmlega 37% en minnst á miðvikudögum eða tæplega 5%. Þessar miklu sveiflur milli ára kunna að skýrast af veðurfari og færð, segir Vegagerðin. sisi@mbl.is