Helga Vala Helgadóttir
Helga Vala Helgadóttir
Evrópuumræðan er á fleygiferð eins og alla jafna þegar harðnar í ári. Þegar verðbólgudraugurinn stígur dans, vextir hækka upp úr öllu valdi og krónan hrynur þá finnum við, sem lifum í íslenska efnahagsumrótinu, það verulega á eigin skinni

Evrópuumræðan er á fleygiferð eins og alla jafna þegar harðnar í ári. Þegar verðbólgudraugurinn stígur dans, vextir hækka upp úr öllu valdi og krónan hrynur þá finnum við, sem lifum í íslenska efnahagsumrótinu, það verulega á eigin skinni. Þess vegna er ekkert óeðlilegt að umræðan um aukið samstarf Íslands við Evrópu komist á flug. Það gerir umræðuna ekki ómarktækari að hægt sé að vísa í staðreyndir úr okkar daglega lífi um leið og talað er fyrir þeirri kröfu að þjóðin fái að greiða atkvæði um áframhaldandi aðildarviðræður við bandalagsþjóðir okkar í Evrópu.

Bandalagsþjóðir okkar já, því við erum nú þegar í sambandi við þessar þjóðir í gegnum samninginn um evrópska efnahagssvæðið og hverju sem úrtöluraddir halda fram þá sést það á margvíslegan hátt hvað sá samningur og fleiri sem við höfum gert við Evrópuríkin hefur gert íslensku samfélagi gott. Þannig erum við aðilar að Evrópuráðinu og mannréttindasáttmála Evrópu og til mannréttindadómstólsins leitar fjöldi Íslendinga sem telja sig ekki hafa fengið réttláta málsmeðferð fyrir íslenskum dómstólum. Við sækjum einnig störf og nám í Evrópu auk þess sem hingað hafa ratað margvíslegar umbætur á íslensku stjórnkerfi.

En það þarf að stíga næsta skref því ástandið í dag sýnir okkur svart á hvítu að við þetta verður ekki búið lengur. Verðbólgan á Íslandi í dag er rúm 10% og þau okkar sem þurfa að greiða af húsnæðis-, náms- og öðrum lánum bíða óttaslegin eftir næstu hækkun stýrivaxa. Þrátt fyrir að við séum óháð öðrum ríkjum með orku ráða stjórnvöld ekki við neitt. Okkar græna orka ætti að tryggja okkur mun lægri verðbólgu en Evrópuríkin eru að fást við, en nei, við njótum bara ekkert góðs af því enda húsnæðisliðurinn stór þátttakandi í hækkandi verðbólgu. Stjórnvöld standa hins vegar ráðalaus og horfa á vexti hækka, húsnæðismarkaðinn í viðvarandi vanda og krónuna lækka svo mjög að það hefur ruðningsáhrif út í allan kostnað, hvort sem horft er til innkaupa heimila eða kostnaðar við stórar framkvæmdir á vegum ríkis og sveitarfélaga. Slíkar stórframkvæmdir verða æ kostnaðarsamari sem svo aftur leiðir til hærri gjalda fyrir okkur íbúa landsins. Erlendir aðilar veigra sér svo við að fjárfesta á landi síkvikrar örmyntar enda fyrirsjáanleikinn lítill sem enginn.

Ég er þess fullviss að almenningur muni styðja áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið verði hann spurður. Ég er þess líka fullviss að ef drög að samningi verða landi og þjóð ekki hagfelld þá muni hinn sami almenningur einfaldlega hafna samningsdrögunum. Hvers vegna stjórnvöld þora ekki að kanna hvað fæst með aukinni Evrópusamvinnu fæst ekki skýrt nema með sérhagsmunatengslum stjórnarflokka sem þurfa ekkert að óttast nema almenning sem veit sínu viti.

Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. helgavala@althingi.is