Efnileg Ísabella Sara Tryggvadóttir kemur til Vals frá KR-ingum.
Efnileg Ísabella Sara Tryggvadóttir kemur til Vals frá KR-ingum. — Morgunblaðið/Eggert
Íslands- og bikarmeistarar Vals í knattspyrnu hafa fengið tvo nýja leikmenn. Ísabella Sara Tryggvadóttir er aðeins 16 ára en var í fyrra í stóru hlutverki hjá KR og skoraði tvö mörk í 16 leikjum í Bestu deildinni

Íslands- og bikarmeistarar Vals í knattspyrnu hafa fengið tvo nýja leikmenn. Ísabella Sara Tryggvadóttir er aðeins 16 ára en var í fyrra í stóru hlutverki hjá KR og skoraði tvö mörk í 16 leikjum í Bestu deildinni. Hún leikur með U17 ára landsliðinu og hefur þar skorað 8 mörk í 22 leikjum. Haley Berg er 24 ára, bandarískur framherji, sem kemur til Vals frá Nordsjælland í Danmörku og var í hópi Houston Dash í bandarísku atvinnudeildinni á síðasta ári.