Lakkrís + Sea Salt Mr. Carrots er gerð úr verðlaunasúkklaði Omnoms sem er í uppáhaldi hjá mörgum.
Lakkrís + Sea Salt Mr. Carrots er gerð úr verðlaunasúkklaði Omnoms sem er í uppáhaldi hjá mörgum.
Eggið yrði þó að vera í anda Omnoms og markmiðið var að skapa listaverk úr súkkulaði þar sem súkkulaðið er í fyrsta sæti. „Súkkulaðigerð er eins og ferðalag eða leiðangur og er súkkulaðikanínan Mr

Eggið yrði þó að vera í anda Omnoms og markmiðið var að skapa listaverk úr súkkulaði þar sem súkkulaðið er í fyrsta sæti.

„Súkkulaðigerð er eins og ferðalag eða leiðangur og er súkkulaðikanínan Mr. Carrots afrakstur slíkrar vinnu en hún var mörg ár í undirbúningi,“ segir Kjartan brosandi.

„Til að byrja með voru uppi hugmyndir um geometrískt egg en eftir fyrstu teikningar voru allir sammála um að það vantaði meiri karakter.

Þá voru gerðar teikningar af lambi og litlum hænuungum en allt kom fyrir ekki, en svo kom það, kanína! Auðvitað gerum við kanínu,“ útskýrir Kjartan spenntur.

„Þegar við hófum þessa vegferð vildum við setja alla áhersluna á súkkulaðið, ekkert nammi eða því um líkt. Það snýst allt nefnilega um Mr. Carrots. Þetta er súkkulaðiveisla,“ segir hann stoltur.

Súkkulaðikanína Omnoms er handgerð og búin til úr verðlaunasúkkulaðinu Lakkrís + Sea Salt. Hún er einungis fáanleg í vefverslun Omnoms sem og í verslun þeirra úti á Granda.