Helgarsteikin Það er fátt sem toppar gott lambalæri. Ekki er síður snjallt að gæða ér á afgöngunum daginn eftir og nýta þá í góða samloku eða vefju.
Helgarsteikin Það er fátt sem toppar gott lambalæri. Ekki er síður snjallt að gæða ér á afgöngunum daginn eftir og nýta þá í góða samloku eða vefju.
Ofnbakað úrbeinað lambalæri 1,5 kg úrbeinað lambalæri ½ dl olía 1 ½ msk. hunang 1 tsk. dijon-sinnep 3 tímíangreinar, laufin tínd af 3 ferskar rósmaríngreinar, nálar tíndar af og saxaðar 1 msk

Ofnbakað úrbeinað lambalæri

1,5 kg úrbeinað lambalæri

½ dl olía

1 ½ msk. hunang

1 tsk. dijon-sinnep

3 tímíangreinar, laufin tínd af

3 ferskar rósmaríngreinar, nálar tíndar af og saxaðar

1 msk. oregano

1 tsk. hvítlauksduft

2 tsk. salt

1 ½ nýmalaður svartur pipar

1 hvítlaukur, skorinn þvert í tvo hluta

Hitið ofn í 180°C. Blandið olíu, hunangi, sinnepi og kryddi saman í skál og smyrjið á lærið. Notið hendur og makið vel á allt lærið, ekki er verra ef lærið fær að marinerast í ísskáp í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt en þess þarf ekki.

Setjið lærið í ofn og bakið í um það bil klukkustund. Ausið soðinu yfir nokkrum sinnum á meðan eldun stendur yfir. Takið lærið út og látið jafna sig á borði í 15 mínútur og hafið álpappír yfir á meðan.

Bakað rótargrænmeti og laukur

6 gulrætur, skrældar

3 rauðlaukar, skornir til helminga

1 sellerírót, skræld og skorin í grófa bita

Setjið í eldfast mót ásamt 100 g af smjöri, saltið og piprið og eldið í ofninum samhliða lærinu. Má líka hafa grænmetið í sömu ofnskúffu og lærið.

Þegar lærið er tekið úr ofninum og hvílir á borðinu skal hækka hitann á grænmetinu í 200°C og elda í 15 mínútur til viðbótar eða meðan kjötið hvílir.

Berið fram með grænmetinu, bökuðum eða grilluðum kartöflum og góðri soðsósu.