Gift Orban, tvítugur Nígeríumaður, skoraði þrennu á fjórum mínútum þegar lið hans, Gent frá Belgíu, vann Istanbul Basaksehir frá Tyrklandi, 4:1, á útivelli í seinni leik liðanna í Sambandsdeildinni í fótbolta í gærkvöld

Gift Orban, tvítugur Nígeríumaður, skoraði þrennu á fjórum mínútum þegar lið hans, Gent frá Belgíu, vann Istanbul Basaksehir frá Tyrklandi, 4:1, á útivelli í seinni leik liðanna í Sambandsdeildinni í fótbolta í gærkvöld. Orban skoraði mörkin á 31., 32. og 34. mínútu leiksins. Hann hefur nú skorað 12 mörk í 9 leikjum fyrir Gent eftir að félagið keypti hann af norska B-deildarliðinu Stabæk í lok janúar, og þar af sjö mörk í síðustu tveimur leikjum.