Iðnaður Róbert Wessmann hjá Alvotech flutti erindi á Iðnþingi.
Iðnaður Róbert Wessmann hjá Alvotech flutti erindi á Iðnþingi. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Íslenska líftæknifyrirtækið Alvotech hefur frá stofnun félagsins fyrir tíu árum varið 180 milljörðum króna í þróun nýrra samheitalyfja, eða lyfjahliðstæðna. „Til að setja þá upphæð í samhengi jafngildir það hér um bil kostnaðinum við að reisa tvo nýja Landspítala

Ásgeir Ingvarsson

ai@mbl.is

Íslenska líftæknifyrirtækið Alvotech hefur frá stofnun félagsins fyrir tíu árum varið 180 milljörðum króna í þróun nýrra samheitalyfja, eða lyfjahliðstæðna.

„Til að setja þá upphæð í samhengi jafngildir það hér um bil kostnaðinum við að reisa tvo nýja Landspítala. Erum við með átta lyf í þróun og búin að tryggja okkur aðgang að yfir 90 mörkuðum um allan heim,“ segir Róbert Wessmann, forstjóri Alvotech, m.a. í viðtali sem birtist í sérblaði Morgunblaðsins í dag í tilefni af Iðnþingi. Þar rakti Róbert sögu Alvotech og stefnu fyrirtækisins.

Róbert segir það taka sex til níu ár að þróa nýja líftæknilyfjahliðstæðu og kosti á bilinu 15-20 milljarða króna.

500 milljarða virði

Alvotech var skráð í Nasdaq-kauphöllina í New York í júní á síðasta ári. Þá var fyrirtækið metið á 2,24 milljarða dala en markaðsvirðið í dag er í kringum 3,48 milljarða dala, jafnvirði um 500 milljarða króna. Hjá Alvotech í Vatnsmýrinni starfar fjöldi erlendra sérfræðinga og annarra starfsmanna. Róbert segir nýleg lög hér á landi hafa skipt miklu fyrir Alvotech, þ.e. að erlendir sérfræðingar sem hingað koma njóta afsláttar af tekjusköttum fyrstu þrjú árin í starfi.

Að sögn Róberts hafa um 400 erlendar fjölskyldur flust til landsins vegna starfa hjá Alvotech. Íbúðir hafa verið tiltækar fyrir þær fyrstu mánuðina.

Höf.: Ásgeir Ingvarsson