Fjarverandi Albert Guðmundsson er ekki í landsliðshópi Íslands.
Fjarverandi Albert Guðmundsson er ekki í landsliðshópi Íslands. — Morgunblaðið/Eggert
Albert Guðmundsson, leikmaður Genoa á Ítalíu, var ekki tilbúinn til að sitja á varamannabekknum í leik Bosníu og Íslands í Zenica næsta fimmtudagskvöld, þegar þjóðirnar mætast í undankeppni EM í knattspyrnu

Albert Guðmundsson, leikmaður Genoa á Ítalíu, var ekki tilbúinn til að sitja á varamannabekknum í leik Bosníu og Íslands í Zenica næsta fimmtudagskvöld, þegar þjóðirnar mætast í undankeppni EM í knattspyrnu. Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari staðfesti við Morgunblaðið í gær að það hefði verið ástæðan fyrir því að hann valdi Albert ekki í hópinn fyrir leikina gegn Bosníu og Liechtenstein. Nánar var rætt um þetta við Arnar á mbl.is í gær.