Löndun Loðnu landað á Fáskrúðsfirði.
Löndun Loðnu landað á Fáskrúðsfirði. — Morgunblaðið/Albert Kemp
Flest bendir til að loðnuvertíðin haldi áfram fram yfir helgi og hefur veiði verið með ólíkindum. „Veðrið hefur leikið við okkur á vertíðinni og spáin er góð fyrir þá sem stunda loðnuveiðar og -vinnslu

Flest bendir til að loðnuvertíðin haldi áfram fram yfir helgi og hefur veiði verið með ólíkindum.

„Veðrið hefur leikið við okkur á vertíðinni og spáin er góð fyrir þá sem stunda loðnuveiðar og -vinnslu. Veiðarnar í mars hafa gengið betur en elstu menn muna og talsvert að sjá af loðnu,“ segir Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja.

Veðurskilyrði hafa þá verið einstaklega góð að undanförnu. Flestar útgerðir binda vonir við að vera búnar að ná öllum þeim afla sem þær hafa heimild fyrir í næstu viku, en veður- og sjólagsspá gerir ráð fyrir mjög hagfelldum veðurskilyrðum á miðunum næstu daga. » 12