Fjallaskáli Sæluhúsið í Hvítárnesi sem er sterk táknmynd FÍ.
Fjallaskáli Sæluhúsið í Hvítárnesi sem er sterk táknmynd FÍ. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ólöf Kristín Sívertsen lýðheilsufræðingur og kennari var kjörin nýr forseti Ferðafélags Íslands á aðalfundi þess sem haldinn var í gærkvöldi. Sigrún Valbergsdóttir verður áfram varaforseti, en hún hefur gegnt skyldum forseta síðustu mánuði

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Ólöf Kristín Sívertsen lýðheilsufræðingur og kennari var kjörin nýr forseti Ferðafélags Íslands á aðalfundi þess sem haldinn var í gærkvöldi. Sigrún Valbergsdóttir verður áfram varaforseti, en hún hefur gegnt skyldum forseta síðustu mánuði. Nýir fulltrúar í stjórn FÍ eru þær Salvör Nordal sem gegnir embætti umboðsmaðs barna og Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.

„Að leitað væri til mín um að gefa kost á mér í embætti forseta Ferðafélags Íslands fannst mér mikill heiður og eftir góða umhugsun ákvað ég að svara því kalli. Ég er þakklát fyrir stuðning í embættið og hlakka til þess að veita starfinu lið,“ segir Ólöf í samtali við Morgunblaðið. Hún hefur á undanförnum árum tekið virkan þátt í starfi FÍ og meðal annars stýrt lýðheilsuverkefnum hjá félaginu. Inntak þeirra hefur verið að hvetja fólk til fara í gönguferðir og kynnast landinu í góðum félagsskap.

„Mér er mikið í mun að efla grasrótarstarfið, fá fjölskyldur og þá ekki síst börn og unglinga til að stunda útivist og hreyfingu. Þetta er afar skemmtilegt og gott, bæði fyrir líkama og sál,“ segir hinn nýi forseti FÍ.

Ferðafélag Íslands var stofnað árið 1927 og heldur úti öflugri starfsemi, eins og löngum hefur verið. Félagið stendur fyrir hundruðum skipulagðra göngu- og útivistarferða fyrir alla aldurshópa á ári hverju, á fjallaskála víða um land og stendur að útgáfu vandaðra rita um náttúru landsins.

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson