Álfur Paul Grant í hlutverki álfs í mynd um Harry Potter.
Álfur Paul Grant í hlutverki álfs í mynd um Harry Potter.
Breski leikarinn Paul Grant er látinn, 56 ára að aldri. Leikarinn hné niður við lestarstöð í London og var í framhaldinu fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn. Samkvæmt frétt BBC liggur dánarorsökin þó ekki enn fyrir

Breski leikarinn Paul Grant er látinn, 56 ára að aldri. Leikarinn hné niður við lestarstöð í London og var í framhaldinu fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn. Samkvæmt frétt BBC liggur dánarorsökin þó ekki enn fyrir.

Grant, sem var 132 cm að hæð, var aðeins 13 ára þegar honum bauðst hlutverk í Star Wars: Return of the Jedi (1983). Hann átti síðar eftir að leika álf í bæði Labyrinth (1986) og Harry Potter and the Sorcerer’s Stone (2001) auk þess sem hann lék í Legend (1985), Willow (1989) og Deuce Bigalow (1999).