Skýli Þörf fyrir upphituð strætóskýli í Reykjavík verður metin.
Skýli Þörf fyrir upphituð strætóskýli í Reykjavík verður metin. — Morgunblaðið/Eggert
Umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur verður falið að kanna hvort þörf sé á upphituðum biðskýlum fyrir farþega strætisvagna í Reykjavík. Breytingartillaga borgarstjórnarmeirihlutans um biðskýli var samþykkt einróma á borgarstjórnarfundi á þriðjudag

Umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur verður falið að kanna hvort þörf sé á upphituðum biðskýlum fyrir farþega strætisvagna í Reykjavík. Breytingartillaga borgarstjórnarmeirihlutans um biðskýli var samþykkt einróma á borgarstjórnarfundi á þriðjudag.

Upprunalega tillagan, sem lögð var fram af Kjartani Magnússyni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, var um að ráðist yrði í uppsetningu skjólgóðra og upphitaðra biðskýla fyrir strætisvagnafarþega í Reykjavík. Aðalmunurinn á þessum tveimur tillögum er sá að upprunalega tillagan gerði ráð fyrir að strax yrði hafist handa en breytingartillagan gerir ráð fyrir að könnuð verði þörf fyrir upphituð biðskýli fyrir farþega strætisvagna í Reykjavík, í samhengi við aðgerðir til þess að bæta aðgengi að biðskýlum og endurnýjun á þeim. Þörfin á skýlunum verði einnig könnuð í samhengi við innleiðingu nýs leiðakerfis og borgarlínu.

„Ég er mjög ánægður með góðar umræður á fundinum um biðskýlamál og bætta þjónustu Strætó,“ sagði Kjartan við mbl.is. „Við borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins samþykktum breytingartillögu meirihlutans í trausti þess að málið verði tekið til jákvæðrar skoðunar í borgarkerfinu. Við hefðum þó fremur kosið að upphafleg tillaga hefði verið samþykkt og verkin látin tala án tafar.“