Vignir Vatnar Stefánsson varð í gær sextándi stórmeistari Íslendinga í skák frá upphafi þegar hann vann lokaskákina á Arandjelovac-mótinu í Serbíu. Í lokaskákinni hafði Vignir Vatnar, sem er tvítugur, betur gegn gríska meistaranum Dimitris Alexakis með svörtu
Vignir Vatnar Stefánsson varð í gær sextándi stórmeistari Íslendinga í skák frá upphafi þegar hann vann lokaskákina á Arandjelovac-mótinu í Serbíu. Í lokaskákinni hafði Vignir Vatnar, sem er tvítugur, betur gegn gríska meistaranum Dimitris Alexakis með svörtu. Alls fékk hann sjö vinninga á mótinu af níu mögulegum. Árangur Vignis Vatnars samsvaraði 2.608 skákstigum en hann bíður þess nú að verða formlega útnefndur stórmeistari.