Styrkur Sema Erla Serdaroglu, fyrir miðju, á styrkveitingunni.
Styrkur Sema Erla Serdaroglu, fyrir miðju, á styrkveitingunni. — Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Sema Erla Serdaroglu, aðjunkt við menntavísindasvið Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr Styrktarsjóði Margaretar og Bents Schevings Thorsteinssonar við Háskóla Íslands til rannsóknar á einelti, kynþáttahyggju og menningarfordómum

Sema Erla Serdaroglu, aðjunkt við menntavísindasvið Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr Styrktarsjóði Margaretar og Bents Schevings Thorsteinssonar við Háskóla Íslands til rannsóknar á einelti, kynþáttahyggju og menningarfordómum. Styrkurinn nemur 1,5 milljónum króna.

Rannsóknin grundvallast á viðtölum við ungt fólk sem hefur reynslu af einelti sem einkennist af kynþáttahyggju og menningarfordómum, segir í tilkynningu frá HÍ. Markmiðið með rannsókninni er að bera kennsl á birtingarmyndir, tíðni og afleiðingar eineltis sem byggir á kynþáttahyggju og/eða fordómum vegna þjóðernisuppruna, menningar og/eða trúarbragða. Rannsóknin nær til nýs sviðs eineltisrannsókna í íslensku samhengi.

Styrktarsjóðurinn er einn þriggja sem Bent Scheving Thorsteinsson hefur stofnað við HÍ.