Sveifla GH Gypsy tríó leikur lög eftir Chick Corea í gítarsveiflubúningi.
Sveifla GH Gypsy tríó leikur lög eftir Chick Corea í gítarsveiflubúningi.
Hljómsveitin GH Gypsy tríó kemur saman í tónleikaröðinni Jazz í hádeginu í dag og næstu tvo daga. Sveitin leikur lög eftir „tónlistarmanninn og margfalda Grammy-verðlaunahafann Chick Corea,“ segir í tilkynningu

Hljómsveitin GH Gypsy tríó kemur saman í tónleikaröðinni Jazz í hádeginu í dag og næstu tvo daga. Sveitin leikur lög eftir „tónlistarmanninn og margfalda Grammy-verðlaunahafann Chick Corea,“ segir í tilkynningu. GH Gipsy Tríóið skipa gítarleikararnir Gunnar Hilmarsson og Jóhann Guðmundsson og kontrabassaleikarinn Leifur Gunnarsson. Tónleikarnir verða í Borgarbókasafninu í Grófinni í dag, fimmtudag, kl. 12.15-13; í Borgarbókasafninu í Gerðubergi á morgun, föstudag, kl. 12.15-13 og í Borgarbókasafninu í Spönginni á laugardag kl. 13.15-14.