Birna Berg Haraldsdóttir var markahæst hjá ÍBV þegar liðið vann öruggan sigur gegn KA/Þór, 28:23, í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, í Vestmannaeyjum í frestuðum leik úr 15. umferð deildarinnar í gær
Birna Berg Haraldsdóttir var markahæst hjá ÍBV þegar liðið vann öruggan sigur gegn KA/Þór, 28:23, í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, í Vestmannaeyjum í frestuðum leik úr 15. umferð deildarinnar í gær. Birna Berg skoraði sjö mörk í leiknum en ÍBV leiddi með níu mörkum í hálfleik, 18:9. Marta Wawrzykowska varði 12 skot í marki ÍBV en Nathalia Soares Baliana var markahæst hjá KA/Þór með átta mörk.