— Morgunblaðið/Hari
Jóhannes Haukur býr sig nú undir eitt stærsta hlutverk sitt á ferlinum hingað til, í þáttunum Those About to Die. Hann er á fullu að undirbúa sig fyrir hlutverkið í þáttunum, sem Anthony Hopkins leikur meðal annars einnig í

Jóhannes Haukur býr sig nú undir eitt stærsta hlutverk sitt á ferlinum hingað til, í þáttunum Those About to Die. Hann er á fullu að undirbúa sig fyrir hlutverkið í þáttunum, sem Anthony Hopkins leikur meðal annars einnig í. „Þetta eru svona „Gladiator“-þættir. Ég verð einn af skylmingaþrælunum og þess vegna er ég nú í „intensífri“ þjálfun fram í júní þegar vélarnar rúlla. Þá er nú meiningin að vera skorinn og fínn,“ sagði Jóhannes í viðtali í Ísland vaknar. Viðtalið má sjá í heild sinni á K100.is.