Englendingurinn Tony Knapp, fyrrverandi þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og karlaliðs KR, er látinn, 86 ára að aldri. Hann lést í svefni í fyrrinótt. Hann tók við íslenska landsliðinu og KR árið 1974

Englendingurinn Tony Knapp, fyrrverandi þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og karlaliðs KR, er látinn, 86 ára að aldri. Hann lést í svefni í fyrrinótt.

Hann tók við íslenska landsliðinu og KR árið 1974. KR stýrði hann í tvö tímabil en íslenska landsliðinu stýrði hann árin 1974 til 1977 og aftur frá 1984 til 1985.