Magnús Hlynur Hreiðarsson er líklega einn ástsælasti fréttamaður landsins en hann ræddi um jákvæðar fréttir í Ísland vaknar. „Ég bara tók meðvitaða ákvörðun á sínum tíma um að vera bara jákvæður og vakna glaður á hverjum degi og sofna glaður

Magnús Hlynur Hreiðarsson er líklega einn ástsælasti fréttamaður landsins en hann ræddi um jákvæðar fréttir í Ísland vaknar. „Ég bara tók meðvitaða ákvörðun á sínum tíma um að vera bara jákvæður og vakna glaður á hverjum degi og sofna glaður. Aðrir mega vera með neikvæðu og leiðinlegu fréttirnar. Ég nenni því ekki. Lífið er of stutt,“ sagði Magnús. „Svo fór ég í hjartaaðgerð 2015 og var næstum kominn upp til himna. Ég var svo þakklátur að það var hægt að bjarga mér,“ sagði hann.